Lausa Skrúfan

Ert þú með lausa skrúfu?

Oft grínast fólk sem glímir við andleg veikindi með að þau séu með lausa skrúfu, jafnvel fleiri en eina. Hugmyndin að nafni á vitundarvakningu til að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu, efla forvarnir og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum, er einmitt sótt í þetta saklausa grín. 

“Þó maður sé búinn að vera með tilfinningar allt sitt líf þýðir það ekki að maður sé sérfræðingur í þeim. Þannig að maður þarf svolítið að kynna sér málið og þess vegna viljum við vera eins aðgengileg og mögulegt er”, segir Sonja Rún Sigríðardóttir, starfsmaður Grófarinnar Geðræktar á Akureyri sem er ein margra sem koma að vitundarvakningunni um mikilvægi geðræktar sem verið er að hleypa af stokkunum á morgun og nefnist einmitt Lausa skrúfan.

Lausa skrúfan frumsýnd á alþjóða geðheilbrigðisdeginum 10.október á Glerártorgi

Verkefnið verður kynnt á Glerártorgi á Akureyri á morgun, á alþjóða geðheilbrigðisdaginn,10. október, þar sem þátttakendur Grófarinnar verða með bás frá klukkan 12 til 18. Þá verður hægt að kynna sér verkefnið betur og fagna geðheilbrigðisdeginum,hlusta á tónlistarmanninn og Ívar Helgason flytja góða tónlist og sjá Salsa-north dansa geðræktar salsa. 

Vinna gegn fordómum, eigin og annarra

Pálína Sigrún Halldórsdóttir, iðjuþjálfi er framkvæmdastjóri Grófarinnar Geðræktar og hún segir það eitt af markmiðum Grófarinnar að vinna gegn fordómum, veita upplýsingar og fræðslu. “Lausa Skrúfan kemur inn í það að við þurfum öll að vita hvað Grófin Geðrækt er, eða úrræði eins og Grófin. Fyrir hvað það stendur og hverjir og hvernig er hægt að nýta þau úrræði sem hér eru. Það hefur vantar að mínu mati,vitundarvakningu hér á landsbyggðinni um geðrækt,  athyglin er svolítið mikið í höfuðborginni, þar er fullt af úrræðum en það eru líka úrræði úti á landi og við þurfum að gera þeim hærra undir höfði, segir  Pálína og bætir við “ég hef náttúrulega heyrt marga segja að Grófin hafi bæði bjargað lífi þeirra og líka bara breytt öllu, af því að hér er svo mikið stuðningsnet, hér finnur þú að þú megir vera þó þér líði illa, þú einhvern veginn þarft ekki að fela þig og þannig máttu sleppa grímunni. Það auðveldar fólki að sættast við það að vera að glíma við eitthvað sem það er búið að vera að fela og þá verður allt svo miklu auðveldara, úti í samfélaginu líka”, segir Pálína og hvetur fólk að kynna sér Lausu skrúfuna. 

Vitundarvakning og fjáröflun

Lausa skrúfan er vitundarvakning en henni er einnig ætlað að vera fjáröflun til að styrkja rekstur Grófarinnar Geðræktar sem er eina opna geðræktin á Norðurlandi.  Takist það verður lögð áhersla á að mæta brýnni þörf á valdeflandi úrræðum fyrir fólk með geðraskanir á öllu Norðurlandi. Í því gæti falist að veita styrki til verkefna á sviði geðræktar á svæðinu.

Þess má að lokum geta að febrúar verður mánuður Lausu skrúfunnar.

Previous
Previous

Flutningar standa nú yfir

Next
Next

Vefsíðan lausaskrufan.is fer í loftið